mobile navigation trigger mobile search trigger
29.03.2018

Vélstjóri hjá Fjarðabyggðarhöfnum

Framkvæmda- og þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf vélstjóra fyrir Fjarðabyggðarhafnir, en um er að ræða fullt starf. Starfið felur í sér vélstjórn dráttarbáts Fjarðabyggðarhafna, auk annarra starfa á framkvæmda- og þjónustumiðstöð.
Starfið er fjölþætt og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður J. Jónsson, forstöðumaður framkvæmda og þjónustumiðstöðvar fjarðabyggðar í síma 470-9000, sigurdur.j.jonsson@fjardabyggd.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl nk. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Starfslýsing vélstjóra Fjarðabyggðarhafna


Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar, starf.fjardabyggd.is