mobile navigation trigger mobile search trigger
10.10.2018

Verkefnastjóri veitna

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra veitna.

Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun, umsjón og eftirliti með rekstri veitna.

Veitur Fjarðabyggðar eru; Rafveita Reyðarfjarðar, Hitaveita Eskifjarðar, fjarvarmaveitur og vatns- og fráveitur
Menntun og reynsla:
• Tækni- eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af rekstri og framkvæmdum.
• Þekking á áætlanagerð.
• Þekking á helstu upplýsingatæknikerfum sem notuð eru í sveitarfélaginu.
• Bílpróf
• Hæfnisþættir
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.

Starfslýsing verkefnastjóra veitna 2018.pdf

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs, marino.stefansson@fjardabyggd.is eða í síma 470 9019

Umsóknarfrestur er til 6. nóvember.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér