mobile navigation trigger mobile search trigger
20.03.2017

Áfangastaðurinn Austurland tekur flugið

Stórum áfanga verður náð í verkefninu um Áfangastaðinn Austurland miðvikudaginn 22. mars.

Áfangastaðurinn Austurland tekur flugið
Austurland að vetri. Mynd: Rhombie Sandoval.

Stórum áfanga verður náð í verkefninu um Áfangastaðinn Austurland miðvikudaginn 22. mars þegar ný heimasíða www.austurland.is opnar með viðhöfn á Egilsstaðaflugvelli sem hefst kl. 14:30. 

Heimasíðunni er ætlað að vera gátt inn í Austurland og er fyrir alla þá sem vilja leita sér upplýsinga um búsetukosti svæðisins, atvinnu og fjárfestingamöguleika. Síðast en ekki síst er síðan gátt fyrir gestina okkar sem vilja heimsækja Austurland og fá nasasjón af austfirskum lífsstíl. Austurland.is mun einfalda fólki og fyrirtækjum að leita hagnýtra upplýsinga um Austurland. Gáttin mun spila stórt hlutverk í að þjónusta  austfirsk fyrirtæki og sveitarfélög við að þróa sameiginlega rödd Austurlands út á við og leggja grunn að stjórnun áfangastaðarins til framtíðar.

Komdu og taktu þátt í gleðinni. Allir velkomnir.

Austurland í Reykjavík

Í kjölfar opnunar heimasíðunnar á Austurlandi verður Áfangastaðarverkefnið og nýja heimasíðan kynnt á Hönnunarmars föstudaginn 24.mars kl. 18.30 á  KEX Hostel í Reykjavík.  Tíu tímar af skapandi orku Austurlands verður á boðstólnum þegar Austurland: Make it happen again* hefst á hádegi sama dag.

Frá hádegi og fram undir miðnætti verður Kex Hostel fyllt austfirsku andrúmslofti. Hressandi Pecha Kucha örfyrirlestrar og fjölbreytt hönnunarverkefni verða til sýnis ásamt tónlistaratriðum frá austfirskum tónlistarmönnum m.a. Prins Póló. Kex Hostel býður uppá hádegis- og kvöldverðarmatseðil með austfirsku ívafi undir styrkri stjórn hins margrómaða matreiðslumanns, Ólafs Ágústssonar.

Nánari upplýsingar veitir Lára Vilbergsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, í síma 899 4373 // lara@austurbru.is

Frétta og viðburðayfirlit