Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar afleysingarstarf afgreiðslufulltrúa. Starfstími er frá maí til loka ágúst á þessu ári.
Helstu verkefni:
- Símasvörun fyrir bæjarskrifstofur og þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar.
- Tekur á móti viðskiptavinum og gestum.
- Aðstoðar umsækjendur vegna leyfisumsókna, flutningstilkynninga o.fl.
- Móttaka pósts og flokkun erinda og skráning.
- Veitir ýmsa stoðþjónustu innan bæjarskrifstofu eins og við undirbúning funda og viðburða.
- Annast innkaup og umsjón með rekstrarvörum og minniháttar skrifstofubúnaði.
- Annast samskipti vegna mötuneytis og umsjón með skipulagningu þess í fjarveru matráðs.
- Annast og aðstoðar við undirbúning móttöku gesta, almennra funda og sér um innkaup veitinga ef þess er óskað.
- Aðstoðar við verkefni sem tengjast þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
Hæfniskröfur:
- Framhaldsskólamenntun.
- Reynsla af þjónustu- og almennum skrifstofustörfum.
- Reynsla og þekking á notkun upplýsingatæknikerfa.
- Góð tungumálakunnátta og ritfærni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
- Samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Skipulagshæfni og sjálfstæði.
Starfið gegnir þýðingarmiklu hlutverki í að veita íbúum góða og skilvirka þjónustu. Rík áhersla er lögð á gott viðmót og þjónustulund.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.
Starfslýsing afgreiðslufulltrúa
Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2018 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í maí.