mobile navigation trigger mobile search trigger
15.01.2018

Breyting á birtingu fundargerða á vefnum

Nýlega var tekið í gagnið nýtt kerfi sem birtir fundargerðir bæjarstjórnar og nefnda Fjarðabyggðar á vefnum með öðrum hætti en verið hefur. 

Breyting á birtingu fundargerða á vefnum

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir eru fundargerðir hættar að birtast á forsíðu vefsins. Þess í stað er nú komin valmynd hægra megin á forsíðu, sem hægt er að smella á og komast þannig inn á síðu með leitarvél þar sem hægt verður að leita að öllum fundargerðum.

Hægt er að leita eftir númeri fundar, heiti nefndar, stjórnar eða ráðs, dagsetningu, tímabili eða sérstökum leitarorðum. Nýja birtingarkerfið gerir einnig kleift að birta meira af upplýsingum og gögnum með fundargerðum þegar það á við. Reglur um birtingu gagna með fundargerðum.

Fleiri myndir:
Breyting á birtingu fundargerða á vefnum
Hægt verður að nálgast allar fundargerðir með því að smella á þennan hnapp á síðunni

Frétta og viðburðayfirlit