mobile navigation trigger mobile search trigger
24.01.2018

Breytt fyrirkomulag í stjórnun og rekstri hafna og þjónustumiðstöðva

Frá og með 1. janúar 2018 tóku gildi skipulagsbreytingar sem leiða af sér breytt fyrirkomulag í stjórnun og rekstri hafna og þjónustumiðstöðva sveitarfélagsins. Með breytingunum er starfsemi hafna og þjónustumiðstöðva sameinuð í nýja þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.

Breytt fyrirkomulag í stjórnun og rekstri hafna og þjónustumiðstöðva

Forstöðumaður þjónustu og framkvæmdamiðstöðvar er Sigurður Jóhannes Jónsson en með honum starfa þrír stjórnendur þeir, Gunnar Ásgeir Karlsson, Ari Sigursteinsson og Helga Björk Einarsdóttir. Gunnar og Ari annast verkstjórn á höfnum og þjónustumiðstöðvum og Helga annast verkstjórn umhverfis- og fegrunarmála. Alls starfa 20 manns við þjónustu hafna og þjónustumiðstöðva. Þorsteinn Guðjónsson fyrrverandi bæjarverkstjóri á Norðfirði hefur tekið við starfi forstöðumanns á Veitusviði sveitarfélagsins.

Markmið ársins 2018  er að samræma starfsemi starfsstöðva og bæta nýtingu húsnæðis, búnaðar og tækja. Stefnt er að því að starfsstöðvar verði sameiginlegar og starfsmenn sem í dag starfa á höfnum og þjónustumiðstöðvum muni hafa sameiginlega starfsstöð.

Markmiðið þessara breytinga er að byggja upp enn öflugri og árangursríkari starfsemi sem mun áfram veita góða og öfluga þjónustu. Breytingarnar hafa ekki í för með sér skerðingu á þjónustu fyrir íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu.

Þeir sem þurfa að hafa samband við þjónustu- og framkvæmdamiðstöð er bent á að hafa samband í 470-9000.

Ef erindið er brýnt og má ekki bíða næsta dags er alltaf hægt að fá samband í gegnum 470-9000 í bakvaktasíma sveitarfélagsins eftir lokun skiptiborðs.

Frétta og viðburðayfirlit