mobile navigation trigger mobile search trigger
01.02.2018

Dagur kvenfélagskonunnar

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, (1930) var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár. 

Dagur kvenfélagskonunnar

Það var enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Dagurinn hefur fest sig í sessi undanfarin ár og er hans nú getið á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum. Kvenfélagasamband Íslands í samstarfi við RÚV og sveitarfélögin í landinu minnir á og vekur athygli á deginum í fjölmiðlum.

Fjarðabyggð sendir öllum kvenfélagskonum í Fjarðabyggð hamingjuóskir með daginn og þakkar um leið fyrir það óeigingjarna starf sem unnið er í kvenfélögum víða í Fjarðabyggð.

Frétta og viðburðayfirlit