mobile navigation trigger mobile search trigger
05.05.2017

Deildarstjórar/leikskólakennarar á Dalborg

Leikskólinn Dalborg á Eskifirði auglýsir eftir deildarstjórum/leikskólakennurum til starfa.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. 

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun er áskilin.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og FL.

Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 4741257 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is og einnig Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4741257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á http://dalborg.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Frétta og viðburðayfirlit