mobile navigation trigger mobile search trigger
26.09.2017

Eskifjörður - Leikskólakennarar á Leikskólann Dalborg

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir tveimur leikskólakennurum til starfa.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða 100% starf.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

Leikskólakennaramenntun áskilin

Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

Frumkvæði og faglegur metnaður

Hæfni og áhugi á að vinna í hóp

Reynsla af starfi með börnum

Ábyrgð og stundvísi

Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 

Umsóknarfrestur er til 10.október

Nánari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is  og einnig Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is

 Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á http://dalborg.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Frétta og viðburðayfirlit