Starf á heilsdagsskólanum Dvöl Eskifirði
Laust er til umsóknar starf í heilsdagsskólanum Dvöl á Eskifirði. Um 35% starfshlutfall er að ræða frá kl. 13:00-16:00 á starfsdögum skólans.
Dvöl er heilsdagsskóli Grunnskóla Eskifjarðar fyrir börn í 1.-4. bekk.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Uppeldismenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst.
Umsóknir og umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2017.
Laun eru samkvæmt samningi LNS og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Frekari upplýsingar veitir Birgir Jónsson, skólastjóri, í síma 868 7556 eða á netfanginu birgir@skolar.fjardabyggd.is
Sótt er um starfið rafrænt á vefgátt Fjarðabyggðar. Gott er að hafa öll gögn tilbúin þegar sótt er um.
Smelltu hér til að sækja um starf.
Einnig er tekið við umsóknum í þjónustugáttum bókasafna og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, merktum: Starf í heilsdagsskólanum Dvöl