mobile navigation trigger mobile search trigger
10.04.2017

Framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll

Framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll ganga vel og eru töluvert á undan áætlun.

Framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll
Eins og sjá má ganga framkvæmdirnar vel.

Þessa dagana er verið að keyra burðarlagi í völlinn og áætlað er að klæðning á honum hefjist í lok maí.

Endurbætur flugvallarins eru samstarfsverkefni Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar en sveitarfélagið fjármagnar, ásamt SÚN og Síldarvinnslunni í Neskaupstað, um helming framkvæmdarinnar. Eftir endurbætur mun flugvöllurinn geta þjónað öryggishlutverki sínu mun betur.

Meira um tilurð framkvæmdanna hér.

Frétta og viðburðayfirlit