Góðgerðarvika Félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar verður haldin í þriðja skiptið vikuna 11. - 16. desember.
Góðgerðarvika Félagsmiðstöðvana í Fjarðabyggð
11.12.2017 - 16.12.2017
Góðgerðarvika Félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar verður haldin í þriðja skiptið vikuna 11. - 16. desember. Eins og áður munu ungmennin í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar gera piparkökuhús, sem verða svo til sýnis í Molanum á Reyðarfirði. Hvert piparkökus stendur fyrir málstað sem ungmennin völdu sjálf. Verður hægt að styrkja málefnin með því að setja í bauka sem standa við hvert hús. Einnig verður uppboð á sjálfum piparkökuhúsunum. Allur ágóði sem mun safnast rennur til góðgerðarmála.
Laugardaginn 16. desember á milli 12 og 14 munu svo krakkarnir í félagsmiðstöðvunum vera á staðnum og kynna málefnin sín og lokauppboð á fer fram á piðarkökuhúsunum. Boðið verður upp á heitt kakó fyrir gesti og gangandi og flutt verður lifandi tónlist fyrir gesti og gangandi.