mobile navigation trigger mobile search trigger
05.05.2017

Iðjuþjálfi/þroskaþjálfi í Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt óskar eftir því að ráða þroskaþjálfa / iðjuþjálfa eða annan uppeldismenntaðan starfsmann.

Leikskólinn er fimm deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum „Grænfána skóli“  og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi og / eða reynsla af þroskaþjálfun/iðjuþjálfun
  • Góð hæfni til samskipta og samstarfs
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 

Laun samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 4741257 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is og einnig Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4741257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á http://lyngholt.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Frétta og viðburðayfirlit