Laust er til umsóknar 100% staða kvenkyns starfsmanns við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar. Um vaktastarf er að ræða.
Starfið er laust frá og með 21. ágúst.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Í starfinu felst m.a.:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Baðvarsla í kvennaklefum
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Norðfjarðar í síma 863 7080 og á netfanginu sigurjon.egilsson@fjardabyggd.is
Sótt er um starfið rafrænt á Íbúagátt Fjarðabyggðar.