mobile navigation trigger mobile search trigger
09.03.2018

Kjaftað um kynlíf - Fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða um kynlíf við unglinga

Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir, Sigga Dögg, verður með fyrirlestur í Grunnskóla Reyðarfjarðar mánudaginn 12. mars kl. 20:00. Fyrirlesturinn nefnist "Kjaftan um kynlíf" og er fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða um kynlíf við unglinga.

Kjaftað um kynlíf - Fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða um kynlíf við unglinga

Virk kynfræðsla seinkar kynferðislegri hegðun barna og gerir hana ábyrgari og öruggari þegar hún hefst. Rannsóknir styðja að virkja þurfi foreldra í samræðum við börn og unglinga um kynferðisleg málefni. Umfjöllunarefnin verða kynfæri, kynlífsathafnir,klám og kynlífsmýtur, svo fátt eitt sé nefnt. Meðhúmor og hreinskilni að leiðarljósi er auðveldara að ræða málefni sem mörgum þykir óþægileg og jafnvel tabú. Markmið fyrirlestrarins er að kynfræðsla verði sjálfsagður hluti af samræðum foreldra við börnsín og að fræðslan styrki þeirra samskipti.

Sigga Dögg, er með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskóla Ísland og M.A. gráðu í kynfræði (sexology) frá Curtin háskóla í Vestur Ástralíu. Sérstaða hennar sem kynfræðari er hispurlaus og hreinskilin nálgun á kynlífi sem byggir á innlendum og erlendum rannsóknum ásamt reynslu af kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum víðsvegar um landið.

Frétta og viðburðayfirlit