mobile navigation trigger mobile search trigger
20.11.2017

Könnun á áformum markaðsaðila varðandi uppbyggingu fjarskiptainnviða

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Norðfjarðarsveit í Fjarðabyggð á árinu 2018 í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli.  Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili á svæðinu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja í Norðfjarðarsveit til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Auglýst er eftir:

  1. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri  a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu í Norðfjarðarsveit á árinu 2018 á markaðslegum forsendum.
  2. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari   lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir             stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu  af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.
  3. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Fjarðabyggð sem er tilbúin að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt lið B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Fjarðabyggðar á netfangið: thorsteinn.sigurjonsson@fjardabyggd.is fyrir kl. 12:00 þann 28. nóvember 2017. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.  Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið: thorsteinn.sigurjonsson@fjardabyggd.is

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Fjarðabyggð, né þá sem sýna verkefninu áhuga.

Frétta og viðburðayfirlit