mobile navigation trigger mobile search trigger
25.03.2017

Leikskólakennarar við Dalborg

Leikskólinn Dalborg á Eskifirði auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.  Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.  Um er að ræða 100% starf.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun er áskilin.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.  Umsóknarfrestur er framlengdur til 10. apríl 2017.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474 1257/476 1341 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is  

Sækja um starf.

Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á http://dalborg.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Frétta og viðburðayfirlit