Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennara sem og stuðningsfulltrúa með nemanda.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 7 janúar 2019 í síðasta lagi.
Um er að ræða 100 % stöður
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Leikskólakennari:
Leikskólakennaramenntun áskilin
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Reynsla af starfi með börnum
- Ábyrgð og stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
Starfsmaður með stuðning II:
- Þroska- /iðjuþjálfa menntun eða hafa lokið grunnnámi fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilega menntun.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Reynsla af starfi með börnum
- Ábyrgð og stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 27. október 2018.
Starfslýsing - Leikskólakennari
Starfslýsing starfsmaður leikskóla með stuðning II
Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is
Smelltu hér til að sækja um á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is