mobile navigation trigger mobile search trigger
27.03.2018

Sameining samþykkt með afgerandi hætti

Íbúar Fjarðabyggðar og Breiðdalsvíkur samþykktu með mjög afgerandi hætti, sameiningu sveitarfélaganna í kosningu laugardaginn 24.mars.  Tæp 87% sögðu já í Fjarðabyggð en 85% í Breiðdalshreppi.

Sameining samþykkt með afgerandi hætti

Alls greiddu 1203 atkvæði í Fjarðabyggð, þar af 1035 eða 86,76% já. 158 eða 13,24% sögðu nei. Tíu seðlar voru auðir eða ógildir. Á kjörskrá voru 3.322 og kjörsókn því 36,2%. 

Kjörsókn í Fjarðabyggð eftir bæjarhlutum:

Eskifjörður: 30,2%
Fáskrúðsfjörður: 37,5%
Norðfjörður og Mjóifjörður: 39,8%
Reyðarfjörður 33,2%
Stöðvarfjörður 51,7%

Alls greiddu 100 atkvæði í Breiðdalshreppi og sögðu 85 þeirra já, 14 sögðu nei og einn seðill var auður. Á kjörskrá voru 155 og kjörsókn því 64,5%.

Kosið verður til sveitastjórnar í sameinuðu sveitarfélagi þann 26. maí næstkomandi.

Frétta og viðburðayfirlit