mobile navigation trigger mobile search trigger
13.02.2018

Samstarfsyfirlýsing um átak gegn heimilisofbeldi

Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri á Austurlandi, Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði undirrituðu á dögunum samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi.

Samstarfsyfirlýsing um átak gegn heimilisofbeldi
Frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri á Austurlandi og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði.

Í yfirlýsingunni felst að þann 1. mars nk. munu lögregla og félagsþjónusta á Austurlandi taka upp samstillt verklag í starfsemi sinni. Markmiðið er markvissari viðbrögð og úrræði gegn heimlisofbeldi og að veita þolendum og gerendum aðstoð og bæta stöðu barna, sem búa við ofbeldi á heimilum.

Fyrirmyndin er verklagið „Að halda glugganum opnum“, sem er samstarfsverkefni lögreglu og félagsþjónustu á Suðurnesjum, sem miðar að því að bæta rannsóknir í málum er varða heimilisofbeldi, nýta betur úrræði um brottvísun af heimili og nálgunarbann og að koma fleiri málum í gegnum réttarvörslukerfið.

Verkefnið, sem er átaksverkefni gegn heimilisofbeldi, mun standa í eitt ár og árangur metinn að þeim tíma liðnum. Allt umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi er því komið undir sama verklag í heimilisofbeldismálum.

Fleiri myndir:
Samstarfsyfirlýsing um átak gegn heimilisofbeldi
Sitjandi frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri á Austurlandi og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði. Standandi frá vinstri: Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Jónas Wilhelmsson Jensen og Júlía Sæmundsdóttir félagsmálistjóri Fljótsdalshéraðs.

Frétta og viðburðayfirlit