mobile navigation trigger mobile search trigger
25.04.2017

Leikskólakennarar í Stöðvarfjarðarskóla

Stöðvarfjarðarskóli auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður (samtals 1.5 stg.) við leikskólann frá og með júní 2017. Önnur þeirra er tímabundin í 6 vikur frá 1. júní.

Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli  og hefur starfað sem slíkur frá árinu 2012.  Að auki starfa tónlistarskóli og bókasafn í sameiginlegu húsnæði með okkur. Í skólanum ríkir góður starfsandi og mikið og gott samstarf er á milli deilda.

Leikskólinn nýtir uppeldisaðferðirnar Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð s.s. „Bættum námsárangri í læsi og stærðfræði“.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu skólans: www.stodvarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til 12. maí n.k.. Nánari upplýsingar veitir Jónas E. Ólafsson, skólastjóri í síma 475-9030/897-1962 og á netfanginu jonas@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um störfin í Íbúagátt Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit