Tónleikar í Tónlistarmiðstöð Austurlands þar sem flutt verða íslensk sönglög.
Strengjakvartettinn: Camerartica og Tinna Árnadóttir
27.08.2017
Klukkan 16:00
Camerarctica hefur komið fram á tónleikum Kammermúsikklúbbsins í Reykjavík um árabil og flutt m.a. við þau tækifæri 10 af strengjakvartettum Shostakovits og lauk síðastliðið haust við heildarflutning allra 6 strengjakvartetta Béla Bartóks. Íslensk sönglög verða fl utt eftir Hildigunni Halldórsdóttur (eldri) og Jóhann G. Jóhannsson útsett fyrir söngvara og strengjakvartett og mun Tinna Árnadóttir syngja við undirleik sveitarinnar.