mobile navigation trigger mobile search trigger
20.02.2017

Sumarstarf - Bæjarskrifstofa

Starf sumarstarfsmanns á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar

Starfsmaður vinnur að margþættum verkefnum á stjórnsýslu- og þjónustusviði vegna afleysinga.  Starfið er fjölbreytt og margþætt.  Ráðið er í starfið í 3 mánuði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní

Helstu verkefni:                

  • Símsvörun og þjónusta í afgreiðslu skrifstofu við viðskiptavini og aðra starfsmenn 
  • Móttaka erinda, flokkun og skráning 
  • Móttaka gesta og viðburðastjórnun
  • Vinna við upplýsinga- og kynningarstörf

Kröfur til umsækjanda: 

  • Stúdentspróf og æskilegt að við komandi hafi viðbótarmenntun
  • Góð almennt tölvukunnátta
  • Góð tungumálakunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
  • Sjálfstæði,  frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum LN við viðkomandi stéttarfélag. 

Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson bæjarritari, í síma 470 - 9062. 

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2017.

 

Frétta og viðburðayfirlit