mobile navigation trigger mobile search trigger
05.05.2017

Þroskaþjálfi í Grunnskólann á Eskifirði

Staða þroskaþjálfa við Grunnskólann á Eskifirði er laus til umsóknar.

Starfshlutfall er allt að 100%.

Næsti yfirmaður starfsmannsins er deildarstjóri sérkennslu.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi og / eða reynsla í þroskaþjálfun.
  • Góð hæfni til samskipta og samstarfs.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.


Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Laun samkvæmt kjarasamningum ÞÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 25. maí 2017.

Upplýsingar veita Hilmar Sigurjónsson skólastjóri (hilmar@skolar.fjardabyggd.is og / eða Friðrik Þorvaldsson aðstoðarskólastjóri frissi@skolar.fjardabyggd.is  eða  í síma 476-1355.

Sótt er um starfið rafrænt á Íbúagátt Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit