mobile navigation trigger mobile search trigger
12.04.2017

Til eigenda fasteigna í Fjarðabyggð

Alþingi Íslendinga samþykkti á árinu 2016 breytingar á lögum nr. 32/2007 um vatnsveitur og lögum nr. 9/2009 um fráveitur.

Til eigenda fasteigna í Fjarðabyggð
Myndin er úr Reyðarfirði

Lagabreytingin skýrir heimildir til álagningar þessara gjalda þannig að á fasteign, sem stendur á sjálfstæðri lóð og er ekki tengd vatnsveitu og eða fráveitu, skuli ekki leggja á vatnsgjald og eða fráveitugjald.

Ekki liggja fyrir í gögnum Fjarðabyggðar upplýsingar um allar eignir sem hugsanlega eru ekki tengdar veitukerfum bæjarins. Hér með er því skorað á þá fasteignaeigendur sem telja að þeirra eign sé ekki tengd öðru hvoru eða báðum veitukerfunum að hafa samband við bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar í síma 470-9000 eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

Fjármálastjóri Fjarðabyggðar

Snorri Styrkársson

Frétta og viðburðayfirlit