mobile navigation trigger mobile search trigger
19.10.2018

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018

Fjarðabyggð veitti nýlega í þriðja sinn umhverfisviðurkenningu, fyrir snyrtilegustu lóð í þéttbýli og lóð fyrirtækis. Afhending viðurkenninga fór fram föstudaginn 19. október í Safnahúsinu í Neskaupstað.

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018

Í ágúst sl. auglýsti Fjarðabyggð í tvígang eftir tilnefningum íbúa um snyrtilegustu lóðina í þéttbýli og dreifbýli og snyrtilegasta atvinnusvæðið.

Alls bárust ellefu tilnefningar. Fagnefnd skoðaði þær allar og gaf hverri lóð fyrir sig einkunn sem var gefin út frá hinum ýmsu þáttum s.s. skipulagi, umhirðu, tegundasamsetningu, snyrtimennsku, viðhaldskröfum o.m.fl.   

Við dómsmat á tilnefndum lóðum einkaaðila og fyrirtækja kom upp sú staða að tvær einkalóðir voru jafnar að stigum og hljóta þær því báðar umhverfisviðurkenningu Fjarðabyggðar. Í ár barst engin tilnefning fyrir snyrtilegustu lóð í dreifbýli og því var ekki veitt viðurkenning í þeim flokki.

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018, einkalóð:

Blómsturvellir 33, 740 Neskaupstað, eigendur Ernu Guðjónsdóttir og Kristinn Þór Ingvarsson.

Umsögn: Í haustskrúðanum er garðurinn eins og fegursta málverk.

Blómsturvellir 45, 740 Neskaupstað, eigendur Sigurborg Kristinsdóttir og Tómas R. Zoéga.

Umsögn: Pallur og gróðursvæði gefa garðinum ævintýrablæ.

Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018, fyrirtæki:

Ferðaþjónustan Mjóeyri Strandgata 120, 735 Eskifjörður, eigendur Berglind Steina Ingvarsdóttir og Sævar Guðjónsson.

Umsögn: Ferðaþjónustan á Mjóeyri nær að fanga staðarandann, svæðið allt tónar vel við gamla hluta Eskifjarðar.

Fleiri myndir:
Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018
Blómsturvellir 33, Neskaupstað
Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018
Blómsturvellir 45, Neskaupstað
Umhverfisviðurkenning Fjarðabyggðar 2018
Mjóeyri, Eskifirði

Frétta og viðburðayfirlit