mobile navigation trigger mobile search trigger
11.12.2017

Umsjónakennari í Mjóafirði

Laus er til umsóknar staða umsjónakennara við útibú Nesskóla í Mjóafirði þetta skólaár. Um er að ræða kennslu í 8. bekk. Við Nesskóla stunda um 215 nemendur nám en í útibúinu er einn nemandi þetta skólaár.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  • Reynsla af kennslu æskileg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 8.janúar 2018.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri í síma 8631739 eða á netfanginu ems@skolar.fjardabyggd.is.

Sótt er um starfið rafrænt á ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit