mobile navigation trigger mobile search trigger
18.05.2017

Umsjónarkennari í Nesskóla

Laus er til umsóknar staða umsjónakennara við Nesskóla næsta skólaár. Um er að ræða kennslu á unglinga- eða miðstigi.

Við Nesskóla stunda um 215 nemendur nám.

Menntunar- og hæfniskröfur:

        Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.

        Reynsla af kennslu æskileg.

        Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.

        Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.

        Góðir skipulagshæfileikar.

        Ábyrgð og stundvísi.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2017.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri í síma 477 1124 eða á netfanginu ems@skolar.fjardabyggd.is.

Sótt er um starfið rafrænt á Íbúagátt Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit