mobile navigation trigger mobile search trigger
05.03.2018

Úthlutun úr minningarsjóði Ágústar Ármanns

Úthlutun úr minningarsjóði Ágústar Ármanns fór fram á fæðingardegi Ágústar 23.febrúar sl. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr minningarsjóðnum en hann var stofnaður árið 2015. Áhersla er lögð á að einstaklingar og stofnanir innan Fjarðabyggðar geti sótt um í sjóðinn fyrir verkefni sem stuðla að aukinni tónlistarmenntun.

Úthlutun úr minningarsjóði Ágústar Ármanns
Frá vinstri Anya, Garðar og Jóhanna.

Í ár hlutu þrír einstaklingar styrk.

Garðar Eðvaldsson er nemandi í saxafónleik sem hefur undanfarin þrjú ár verið við nám í djasssaxófónleik í Basel Sviss, þar sem hann hyggst ljúka Bachelor gráðu nú í sumar. 

Jóhanna Seljan fær styrk til að sækja námskeið til Danmerkur í Complete Vocal Technique söngtækninni í Kaupmannahöfn. 

Anya Hrund Shaddock fær styrk til að hefja nám við Menntaskólann í Tónlist á Rythmískri tónlistarbraut, sem leggur grunn að háskólanámi á sviði tónlistar, auk einkatíma í söngtækni hjá Vocal Arts Technique.

Frétta og viðburðayfirlit