Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, verður með auglýsta viðtalstíma í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar. Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs og Anna Berg Samúelsdóttir, umhverfisstjóri, verða einnig á staðnum til viðtals varðandi umhverfismál og framkvæmdir innan bæjarkjarnanna. Íbúar eru hvattir til þess að koma með ábendingar varðandi þessi mál.
Viðtalstímarnir verða sem hér segir:
Stöðvarfjörður 7. mars kl. 16:00-18:00 Þjónustugátt bókasafnsins
Reyðarfjörður 8. mars kl. 16:00-18:00 Bæjarskrifstofu
Neskaupstaður 9. mars kl. 16:00-18:00 Þjónustugátt bókasafnsins
Fáskrúðsfjörður 14. mars kl. 16:00-18:00 Þjónustugátt bókasafnsins
Eskifjörður 17. mars kl. 16:00-18:00 Þjónustugátt bókasafnsins
Mjóifjörður Eftir samkomulagi
Þá má alltaf bóka viðtalstíma við bæjarstjóra og embættismenn á bæjarskrifstofu eftir samkomulagi virka daga kl. 08:15 – 16:00 í síma 470 9000.
Einnig má hafa beint samband við bæjarstjóra og embættismenn með tölvupósti á vef sveitarfélagsins, fjardabyggd.is.