BÆJARHÁTÍÐIR
Sumarið er tíminn fyrir glaða daga og bjartar nætur. Í Fjarðabyggð má velja úr fjölda viðburða á sumrin. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi og spannar sumarið allt frá fjölskylduvænum útihátíðum og hoppukastölum að útivist og fjölþjóðlegu þungarokki. Og þar sem íslenska sumarið er heldur stutt, hefst viðburðadagatalið snemma ársins og lýkur seint.
Margar af hátíðum sumarins eiga rætur að rekja til bæjarkjarna sveitarfélagsins og eru mótaðar af sögu viðkomandi staða, eins og hernámsdagurinn á Reyðarfirði og Franskir dagar á Fáskrúðsfirði. Aðrar eru nýrri af nálinni, eins og Eistnaflug, en hafa engu að síður skapað sér sértakan sess meðal bæjarhátíða í Fjarðabyggð.
Þá eru ótaldar hátíðirnar sem fylgja öðrum árstímum en sumrinu, Páskafjör og Dagar myrkurs.
Hernámsdagurinn

Hernáms Reyðarfjarðar árið 1940 er minnst síðasta sunnudag júnímánaðar. Hernámsganga, hernámshlaup og dagskrá við Íslenska stríðsárasafnið er á meðal árvissra viðburða.
Eistnaflug

Rokkhátíðin Eistnaflug er haldin aðra helgina í júlí á Norðfirði. Hart rokk alla helgina alveg frá miðvikudegi. Hátíðin hefur áunnið sér sess sem einn helsti tónlistarviðburður ársins.
Franskir dagar

Bæjarhátíðin Franskir Dagar er haldin á Fáskrúðsfirði fjórðu helgina í júlí, þ.e. helgina fyrir verslunarmannahelgi. Menningarveisla fyrir alla fjölskylduna með frönsku ívafi.
Pólar Festival

Á Stöðvarfirði er sjálfbæra bæjarhátíðin Pólar Festival. Öðruvísi hátíð sem farið hefur fram samhliða hátíðinni „Maður er manns gaman“. Nánar um hátíðirnar.
Neistaflug

Ekta fjölskylduhátíð á Norðfirði um verslunarmannahelgina, fyrstu helgina í ágúst. Samhliða er einnig hlaupið Barðsneshlaup, 27 km fjöru- og fjallahlaup á milli fjarða. Bara gaman.
Á fætur í Fjarðabyggð
Göngu- og gleðivikan "Á fætur í Fjarðabyggð" er haldin síðustu vikuna í júní. Þessi athyglisverða gönguhátíð býður upp á mikinn fjölda af skipulögðum viðburðum fyrir alla fjölskylduna um alla Fjarðabyggð og tvinnar saman með einstökum hætti útivist og frábæra skemmtun.