LEIGUÍBÚÐIR FJARÐABYGGÐAR
Fjarðabyggð leigir út íbúðir í öllum bæjarhlutum og er leiguverð breytilegt eftir stærð og staðsetningu íbúða. Umsóknareyðublöð um leiguhúsnæði má nálgast í Íbúagátt Fjarðabyggðar. Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 470 9000 eða á leiguibudir@fjardabyggd.is.
Félagsþjónusta Fjarðabyggðar forgangsraðar umsóknum og eru íbúðir leigðar út um leið og þær losna og umsókn liggur fyrir. Umsóknum er hægt að skila á bókasöfnin eða til Bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.