Allt nema töskur dagurinn
23.04.2024Nemendaráð Grunnskóla Reyðarfjarðar samanstendur af einstaklega hugmyndaríkum og framtakssömum nemendum. Á mánudaginn síðastliðinn stóðu nemendur fyrir sérstökum viðburði sem fólst í því að hvetja nemendur og starfsmenn til að koma með gögnin sín í einhverju öðru en hefðbundnum skólatöskum.