mobile navigation trigger mobile search trigger

HAFNIR

Fjarðabyggðarhafnir eru næst stærsta höfn landsins, með tæplega þriðjung af öllum vöruútflutningi landsmanna. Átta hafnir eru í rekstri í Fjarðabyggð. Þær eru í Mjóafirði, Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, að Mjóeyri, í Fáskrúðsfirði, á Stöðvarfirði og í Breiðdal. Starfsemi hafnanna er fjölbreytt og spannar allt frá Norðfjarðarhöfn og Mjóeyrarhöfn, sem eru með stærstu höfnum landsins, að Mjóafjarðarhöfn, sem er með þeim minnstu á landinu.

Fjarðabyggðarhafnirnar þjóna öllum skipum, bátum og öðrum sem um þær eiga leið og nær þjónustan til útgerða, fyrirtækja og einstaklinga.

Veitt er sólarhringsþjónusta í vaktsímum hafnanna.

  • Mjóafjarðarhöfn

    Mjóafjarðarhöfn

    Lítill 20m kantur

    Hafnarbakkar: Ferjubryggja

  • Norðfjarðarhöfn

    Norðfjarðarhöfn

    Stór fiskihöfn

    Hafnarbakkar: Hafnskipabryggja, Bæjarbryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja, Nótabryggja

  • Eskifjarðarhöfn

    Eskifjarðarhöfn

    Stór fiski- og vöruflutningahöfn

    Hafnarbakkar: Hafnskipabryggja, Bæjarbryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja, Nótabryggja

  • Reyðarfjarðarhöfn

    Reyðarfjarðarhöfn

    Meðalstór fiski- og vöruflutningahöfn

    Hafnarbakkar: Hafnskipabryggja, Bæjarbryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja, Nótabryggja

  • Mjóeyrarhöfn

    Mjóeyrarhöfn

    Stór vöruflutningarhöfn

    Hafnarbakkar: Mjóeyrarbryggja

  • Fáskrúðsfjarðarhöfn

    Fáskrúðsfjarðarhöfn

    Stór fiskihöfn

    Hafnarbakkar: Hafnskipabryggja, Bæjarbryggja, Löndunarbryggja

  • Stöðvarfjarðarhöfn

    Stöðvarfjarðarhöfn

    Bátahöfn

    Hafnarbakkar: Bæjarbryggja