Fara í efni

Skíðasvæði

Oddsskarð á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.

Fréttir - opnun

27.04.2026

Skíðamiðstöðin í Oddsskarði er LOKUÐ í dad

Skíðamiðstöðin í Oddsskarði er LOKUÐ í dag mánudaginn 27. apríl.

Opnunartími á veturna er mánudaga til föstudaga kl. 16:00 til 19:00 og kl. 10:00 - 16:00 um helgar. Opið er svo framarlega sem nægur snjór er í brekkunum. 

Í boði er að leigja skíði, skó og stafi ásamt snjóbretti og brettaskó. Hægt er að skoða gjaldskrá hér að neðan.

 

Við birtum allar tilkynningar varðandi opnun á facebook og Instagram síðu Oddsskarð. 

Gjaldskrá

Gjaldskrá - Skíðamiðstöðin Oddsskarði

Gjaldskrá

Skíðamiðstöðin í Oddsskarði
Gildir frá 1. maí 2026

Lyftukort

  • 3 klst
  • Börn 1.756 kr.
  • Fullorðnir 4.889 kr.
  • Dagskort
  • Börn 2.115 kr.
  • Fullorðnir 5.742 kr.
  • Helgarpassi (föstudagur – sunnudagur)
  • Börn 3.405 kr.
  • Fullorðnir 10.534 kr.
  • Vetrarkort
  • Börn 12.610 kr.
  • Fullorðnir 29.634 kr.
  • Skólakort (fyrir framhalds- og háskólanema)
  • 21.389 kr.

Sérþjónusta

  • Opnun utan hefðbundins opnunartíma (4 tímar) 83.420 kr.
  • Leiga á skíðaskála 38.800 kr.

Skíðaleiga

  • Undir 110 cm (skíði, skór og stafir) 3.618 kr.
  • Yfir 110 cm (skíði, skór og stafir) 4.889 kr.
  • Bretti og skór 3.735 kr.
  • Stök skíði/bretti eða skór (börn) 2.037 kr.
  • Stök skíði/bretti eða skór (fullorðnir) 2.716 kr.
  • Hjálmar gjaldfrjálsir

Afslættir og upplýsingar

  • Börn 0–10 ára: Frítt
  • 67 ára og eldri & öryrkjar: 50% afsláttur
  • 20% afsláttur af vetrarkortum fyrir áramót
  • Hægt er að kaupa vetrarkort í sundlauginni á Eskifirði og í Neskaupstað og á netinu