mobile navigation trigger mobile search trigger
28.04.2019

Forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð auglýsir starf forstöðumanns Menningarstofu Fjarðabyggðar laust til umsóknar

Menningarstofa hefur verið starfrækt síðan árið 2017 og hefur það hlutverk að efla menningu, listir og skapandi starf í Fjarðabyggð. Hún þjónar sem tengiliður milli stjórnkerfis, fagumhverfis og grasrótarstarfsemi í listum og menningu þvert á svið og stofnanir. Menningarstofa starfar einnig að framgangi málaflokksins á Austurlandsvísu fyrir hönd Fjarðabyggðar.

Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á menningarmálum sem mun hafa yfirsýn og drifkraft til að tengja saman allt það ólíka sem fer fram í fjölkjarna sveitarfélagi. Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi Menningarstofu Fjarðabyggðar, verkefnastjórn og fjármögnun verkefna stofunnar. Viðkomandi er einnig forstöðumaður Tónlistarmiðstöðvar Austurlands.

Helstu verkefni:
• Ábyrgð á framgangi menningarstefnu.
• Ábyrgð og umsjón með verkefnastjórnun í menningarmálum.
• Þróunarstarf, samstarf og fagleg ráðgjöf á sviði menningarmála.
• Efling samstarfs í menningarstarfsemi.
• Ráðgjöf við innileiðingu menningar og lista í frístundastarfi og skólastofnunum.
• Ábyrgð og umsjón með öflun styrkja og styrktaraðila.
• Ber ábyrgð á upplýsingamiðlun um menningarstarfsemi.
• Samstarf við menningarstofnanir á landsvísu og er tengiliður sveitarfélagsins á sviði menningarmála.

Hæfniskröfur:
• Menntun á sviðum tónlistar, menningar eða lista er áskilin.
• Þekking og reynsla af menningarstarfi og listum er áskilin.
• Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
• Reynsla af markaðs- og kynningarmálum æskileg.
• Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska, færni og hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
• Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Starfslýsing forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar 2019.pdf

Allar frekari upplýsingar veitir Karna forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, í síma 866 6977 eða á netfanginu karna@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2019 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2019.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is með því að smella hér