Píeta samtökin vekja athygli á verkefni Veigu Grétarsdóttur kajakræðara, sem hún kallar „Á móti straumnum“ eða „Against the current“. Veiga ætlar að róa hringinn í kringum Ísland og safna í leiðinni áheitum fyrir Píeta samtökin.
Veiga mun halda fyrirlestur á Reyðarfirði þriðjudaginn 16.júlí í safnaðarheimili Reyðarfjararkirkju kl. 20:00 - frítt inn og allir vekomnir.
Veiga er hálfnuð með hringinn og búin með erfiðasta kafla leiðarinnar sem er suðurströnd Íslands, á milli Víkur og Hafnar. Hún lagði af stað frá Ísafirði þann 14.maí sl. og gerir ráð fyrir koma til Neskaupstaðar um miðja næstu viku. Pieta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og veita fólki í sjálfsvígshættu og með sjálfsskaða viðtalsþjónustu þeim að kostnaðarlausu. Samtökin eru rekin eingöngu á styrkfé og hefur þjónusta samtakanna margfaldast frá því þau hófu starfsemi sína á vordögum 2018. Rúmlega 200 manns hafa leitað til samtakanna og fengið aðstoð og fjöldi skjólstæðinga hefur þrefaldast frá því í janúar á þessu ári.
Veiga er fyrsta manneskjan til að róa hringinn í kringum landið rangsælis, sem er á margan hátt táknrænt en ásamt því að vera fyrsta íslenska konan til að róa hringinn, er Veiga mögulega fyrsta transkonan í heiminum til að reyna slíkt afrek. Óskar Páll kvikmyndagerðarmaður fylgir Veigu eftir og hyggst gera heimildarmynd um verkefnið.
Veiga mun halda fyrirlestur á Reyðarfirði þriðjudaginn 16.júlí í safnaðarheimili Reyðarfjararkirkju kl. 20:00 - frítt inn og allir vekomnir.
Heimasíða Veigu.
Hér er hægt að lesa um verkefnið, heita á Veigu og fylgjast með ferðum hennar í rauntíma.
Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Ólöf Birna Björnsdóttir verkefnastjóri í síma 847 3223.