mobile navigation trigger mobile search trigger
14.04.2021

Aflétting sóttvarna – Breyting á þjónustu Fjarðabyggðar

Samkvæmt breytingum á sóttvarnarráðstöfunum sem kynntar voru í gær er gert ráð fyrir talsverðum tilslökunum á sóttvörnum sem taka gildi frá og með 15. apríl. Þetta mun gera Fjarðabyggð kleift að opna aftur á ýmsa þjónustu sem lokuð hefur verið undanfarnar vikur

Aflétting sóttvarna – Breyting á þjónustu Fjarðabyggðar

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Sundlaugum er heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Sundlaugar opana því skv. auglýstum opnunartíma fimmtudaginn 15. apríl
  • Líkamsræktum er heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annara skilyrða. Unnið er að útfærslu opnunar og verður það kynnt um leið og það liggur fyrir.
  • Skíðasvæðið í Oddsskarði opnar að nýju og verður heimilt að taka á móti 50% af leyfilegum hámarksfjölda.
  • Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum eru heimilar. Íþróttamannvirki Fjarðabyggðar standa hópum því til boða skv. útgefinni æfingatöflu, tímapöntunum eða nánari samkomulagi við forstöðumenn.
  • Bókasöfn Fjarðabyggðar verða opin, en ítrustu sóttvarna áfram gætt.

Verði frekari breytingar á þessu reglum verða þær kynntar hér á heimasíðunni og samfélagsmiðlum.