Fundur bæjarstjórnar fimmtudaginn 2. apríl 2020 verður fjarfundur og jafnframt lokaður almenningi vegna sóttvarna og samkomubanns sem er í gildi vegna COVID-19 faraldursins. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á vefnum eftir að honum lýkur.
Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins má nálgast í síma 470 9000.