Í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra og sóttvarnarlæknis verða breytingar á þjónustu bókasafna Fjarðabyggðar sem hér segir.
Breytt þjónusta bókasafna í Fjarðabyggð vegna hertra sóttvarnararáðstafana
Frá og með 3. nóvember til 18. nóvember verður viðskiptavinum almenningsbókasafnanna boðið upp á að hafa samband við bókasöfnin og panta bækur. Afhending og skil bóka fer eftir samkomulagi við forstöðumenn.
Ástæðan fyrir þessum breytingum á þjónustu er að bókasöfnin eru staðsett í grunnskólabyggingum Fjarðabyggðar og hefur byggingunum verið skipt niður í sóttvarnarhólf þar sem ekki er leyfður samgangur á milli hólfa og utanaðkomandi bannaður aðgangur. Þetta er gert til þess að fyrirbyggja smit. Almenningi er þess vegna boðið upp á að hafa samband við söfnin, panta bækur eða skila, og að fá gögnin afgreidd eftir samkomulagi við forstöðumann.
Viðskiptavinum er bent á að hafa samband í síma eða með tölvupósti.
Bókasafnið í Neskaupstað: Sími 477 1521, netfang: boknes@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Eskifirði: Sími 476 1586, netfang: bokesk@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Reyðarfirði: Sími 474 1366, netfang: bokrey@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Fáskrúðsfirði: Sími 475 9016, netfang: bokfas@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Stöðvarfirði: Sími 475 9017, netfang: boksto@fjardabyggd.is
Bókasafnið í Breiðdal: Sími 470 5574, netfang: bokbre@fjardabyggd.is
Einnig viljum við minna á facebook síðu bókasafnanna, þar sem ýmsan fróðleik er að finna.
Ef breytingar verða á fyrirkomulaginu verður það auglýst á heimasíðu Fjarðabyggðar.