Fjarðabyggð óskar eftir tillögum frá áhugasömum aðilum að rekstri tjaldsvæða sveitarfélagsins.
Um er að ræða fimm tjaldsvæði ásamt þjónustuhúsum og þeim svæðum sem þeim tilheyrir. Svæðin eru í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
Tillögur skulu berast eigi síðar en 18. desember 2017 merkt "Tjaldsvæði Fjarðabyggðar 2018". Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Tengiliður verkefnisins er umhverfisstjóri, anna.berg@fjardabyggd.is, sími 470 9000.