Laus er til umsóknar staða forstöðumanns við félagsmiðstöðina Hellinn á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða tímabundið starf til fimm mánaða, frá miðjum janúar 2019 til loka maí 2019. Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Æskilegt er að umsækjendur
- hafi menntun á framhalds- og/eða háskólastigi sem nýtist í starfi
- hafi reynslu af árangursríku starfi með ungmennum
- hafi góða skipulags- og samskiptahæfni
- sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.