Laus er til umsóknar staða fristundaleiðbeinanda Sumarfrístundar á Reyðarfirði sumarið 2019. Starfið er um 50-60% starf í fimm vikur frá 1. júní til 5. júlí.
Helstu verkefni
• Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
• Leiðbeina börnum í leik og starfi.
• Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
• Aðstoða börn í kaffitímum.
Menntun og reynsla
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Áhugi á að vinna með börnum.
• Hreint sakavottorð
• Frumkvæði og sjálfstæði.
Hæfnisþættir
• Frumkvæði og sjálfstæði.
• Skipulögð og öguð vinnubrögð.
• Metnaður og dugnaður.
• Áhugi á að taka þátt í og þróa nýtt verkefni.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfslýsing frístundaleiðbeinandi við sumarfrístundar.pdf
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 893 9098 og í gegnum netfangið bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2019
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér