Geirþrúður Anna leikur allar sex einleikssellósvítur Johanns Sebastians Bach á tónleikaferðalagi um landið sumarið 2021.
Á lokatónleikum sínum á landsbyggðinni þann 17. júní, kl. 17 kemur Geirþrúður fram í Gamla kaupfélaginu á Breiðdalsvík.
Aðgangur ókeypis
Sellósvítur Johanns Sebastians Bach eru perlur sellóbókmenntanna og meðal dásamlegustu verka klassískra tónbókmennta. Pablo Casals lýsti þeim sem glitrandi ljóðum í hljómænu formi. Í þessari sex þátta óperu fyrir einleiksselló, þar sem hver þáttur ber sinn eigin brag, tóntegund, og sérstæðu, tekur Bach flytjanda sem og hlustendur í ótrúlegt ferðalag. Frá fyrsta einfalda þríhljóminum, sem skapar hljóðheim fyrstu svítunnar, leiðir Bach okkur svo í gegnum innhverfu aðra svítuna, opinskáu þriðju svítuna, spámannslegu fjórðu svítuna, tregafullu og dramatísku fimmtu svítuna, og loks, hetjulegu og sigurglöðu sjöttu svítuna.
Þetta verkefni er styrkt af Tónlistarsjóði.