Laus staða íþróttakennara við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar næsta skólaár.
Um er að ræða íþróttakennslu ásamt kennslu bóklegra greina og er tímabundin til eins árs.
Menntun og æskileg hæfni:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði
• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Ánægja af starfi með börnum
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 470-9020. Netfang: eya@skolar.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2018.
Smelltu hér til að sækja um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is