mobile navigation trigger mobile search trigger
27.11.2020

Jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar

Menningarstofa Fjarðabyggðar í samstarfi við grunnskólana í Fjarðabyggð efnir til jólasmásagnakeppni á aðventunni. Þátttaka er opin öllum nemendum í grunnskólum Fjarðabyggðar, en veitt verða vegleg bókaverðlaun fyrir bestu sögurnar í þremur aldurshópum – fyrir yngsta stig, miðstig og efsta stig.

Jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar

Sögurnar mega vera um hvað sem er og hvernig sem er: Jólasveina, jólaketti, jólagjafir, álfa og þess vegna geimverur, dreka og galdrameistara en innsendar sögur þurfa að tengjast hátíðunum í kringum jólin með einhverjum hætti, gerast um jólin, áramótin og þar um kring

Reglurnar eru eftirfarandi:

Sagan verður að tengjast jólunum á einhvern hátt og hún verður að vera að lágmarki 200 orð en að hámarki 1500. Ef höfundur myndskreytir söguna sína þá má taka ljósmyndir og senda þannig inn með sögunni.

Nauðsynlegt er að lesa söguna vel yfir og lagfæra stafsetningu áður en hún er send inn. Gott er að fá aðstoð frá einhverjum í skólanum eða fjölskyldunni með það og ekki er verra ef hægt er að slá söguna inn í tölvu ef þess er kostur. Sagan verður að vera á íslensku og hún verður að vera frumsamin. Hver höfundur má senda inn tvær sögur.

Sögur má senda á netfangið menningarstofa@gmail.com eða í pósti á:

Fjarðabyggð

B/t. Menningarstofu Fjarðabyggðar

Hafnargata 2

730 Fjarðabyggð

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við innsendingu: Nafn höfundar, skóli og bekkur, netfang og símanúmer forráðamanna.

Skilafrestur rennur út 8. desember en vinningssögurnar í hverjum aldurshópi verða birtar á milli jóla og nýárs á Facebook-síðu Menningarstofu Fjarðabyggðar.