mobile navigation trigger mobile search trigger
18.07.2019

Karlkyns starfsmaður við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar

Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar. Vegna eðli starfsins er auglýst eftir karlkyns starfsmanni. Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf þann 1. september nk.

Í starfinu felst m.a.:
• Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum.
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar.
• Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu. 
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti.
• Þrif.

Hæfniskröfur:
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frumkvæði og skipulagshæfni.
Hæfni í mannlegum samskiptum.

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Ragnar Benediktsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar í síma 862 0363 og í gegnum netfangið johannrb@fjardabyggd.is 

Starfslýsing.

Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst 2019.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar.