mobile navigation trigger mobile search trigger
30.07.2021

Karlkyns starfsmaður við Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar

Fjarðabyggð auglýsir eftir karlkyns starfsmanni til starfa við Íþróttamiðstöðina á Reyðarfirði. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna sem sækja íþróttamiðstöðvar á eigin vegum eða á vegum skóla.  Rík áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sveigjanleika og þjónustulund.

Helstu verkefni:

  • Eftirlit og gæsla með notendum íþróttamiðstöðvar.
  • Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum þar sem reknar eru sundlaugar
  • Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu.
  • Almenn afgreiðsla.
  • Allar almennar ræstingar í Íþróttamiðstöðinni
  • Þvottur á handklæðum og sundfatnaði.
  • Taka á móti og leysa úr/koma áleiðis öllum ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.

Hæfniskröfur: 

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af þjónustustörfum.
  • Tungumálakunnátta til að geta þjónustað erlenda gesti.
  • Námskeið í skyndihjálp.
  • Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og þjónustulund

Starfslýsing starfsmaður íþróttamannvirkis

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Allar frekari upplýsingar veitir Ásdís Sigurðardóttir , stjórnandi íþrótta- og tómstundamála, í síma 898-3310  eða á netfanginu asdis.sigurdardottir@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2021. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér