mobile navigation trigger mobile search trigger
21.05.2019

Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Kennara vantar við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar í almenna kennslu á mið- og unglingastigi.

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
• Samskipta og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.
• Skipulagshæfileikar.
• Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Starfslýsing grunnskólakennari 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Eygló Aðalsteinsdóttir í síma 867 - 6177 eða á netfangiðeya@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til 3. júní n.k.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Smelltu hér til að sækja um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is