mobile navigation trigger mobile search trigger
21.06.2019

Kynning á skipulags- og matslýsingu vegna deiliskipulags Heyklifs

Skipulags- og matslýsing vegna deiliskipulags Heyklifs á Kambanesi við sunnanverðan Stöðvarfjörð verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, í þjónustugátt í bókasafninu á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og á heimasíðu Fjarðabyggðar, fjardabyggd.is svo þeir sem þess óska geti kynnt sér skipulags- og matslýsinguna og komið með ábendingar vegna hennar. Kynningartími er til 7. júlí næstkomandi.

Skila skal skriflegum ábendingum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða á netfangið skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð